Byssur og búnaður.
Milli leyfishafa.
Rifflar, haglabyssur, sjónaukar og veiðibúnaður, beint frá fólki. Semdu hér, kláraðu eigendaskiptin á Ísland.is.
- Aðeins milli leyfishafa
- Eigendaskipti á Ísland.is
- Ókeypis að auglýsa
Flokkar
Allur markaðurinn- Rifflar
Boltalás, hálfsjálfvirkir, lever action og fleira.
- Haglabyssur
Yfir og undir, pumpur, hálfsjálfvirkar og einhleypur.
- Skammbyssur
Íþróttaskammbyssur og revolverar, D-réttindi.
- Loftbyssur
Loftrifflar og loftskammbyssur. Leyfisskyldar eins og aðrar byssur.
- Sjónaukar og kíkjar
Riffilsjónaukar, rauðpunktar, kíkjar og fjarlægðarmælar.
- Skotfæri og hleðsla
Hleðslutæki, hylki og það sem leyfi þarf fyrir.
- Aukabúnaður og varahlutir
Hljóðdeyfar, töskur, skápar, skefti, magasín og íhlutir.
- Veiðibúnaður
Fatnaður, tálfuglar, lokkflautur, skotbelti, felunet og bakpokar.
Hvað ertu að veiða?
Opna markaðinnNýjast á markaðnum
Sjá alltLöglega, og án þess að það sé flókið.
Skotvopnalagerinn selur ekkert sjálfur. Hér finnið þið hvort annað og semjið, svo klárar lögreglan eigendaskiptin á Ísland.is. Við minnum á hvert skref.
- 1
Finndu og semdu
Spjallið hér á síðunni, gerið tilboð og komið ykkur saman um verð og afhendingu.
- 2
Kaupandi sækir um kaupheimild
Kaupandi með gilt skotvopnaleyfi og viðurkenndan skáp sækir um heimild fyrir þessu tiltekna vopni á Ísland.is.
island.is - 3
Seljandi staðfestir
Lögreglan afgreiðir umsóknina og seljandi staðfestir söluna í pósthólfinu sínu á Ísland.is.
- 4
Afhending eftir skráningu
Þegar vopnið er skráð á nýjan eiganda má afhenda það. Fyrr ekki. Óhlaðið og í umbúðum.
Fáðu að vita fyrst.
Ekki treysta á heppni.
Segðu okkur hvað þig vantar, til dæmis Tikka í 6.5 Creedmoor undir 200.000 kr., og við sendum þér póst um leið og slík auglýsing birtist. Þú þarft ekki lengur að fletta Facebook-hópum á klukkutíma fresti.
Setja upp vaktNýtt: Tikka T3x Lite .308 Win
165.000 kr. · Sem nýtt · B-réttindi · Sjónauki fylgir
Nýtt: Beretta 686 Silver Pigeon 12/76
265.000 kr. · Gott · A-réttindi
Nýtt: Zeiss Conquest V4 4-16x44
125.000 kr. · Sem nýtt
Allt sem Facebook-hópar eru ekki.
Leit sem skilur byssur
Síaðu eftir gerð, kalíberi, framleiðanda, réttindaflokki, ástandi og verði. Ekki fletta í gegnum hundrað færslur.
Bara milli leyfishafa
Sá sem vill kaupa byssu, hljóðdeyfi eða íhlut staðfestir fyrst að hann hafi skotvopnaleyfi. Seljandi sér það áður en hann svarar.
Spjall, tilboð og umsagnir
Spjallaðu og gerðu tilboð hér á síðunni, fáðu póst ef þú missir af svari, og gefðu umsögn eftir viðskiptin.
Óska eftir
Sjá allar óskirByssan sem þú notar ekki lengur er peningur í skápnum.
Það kostar ekkert að auglýsa. Fólk með vakt fær póst um leið og auglýsingin þín fer í loftið, og við minnum ykkur bæði á hvernig eigendaskiptin ganga fyrir sig.
Setja á sölu